Viskíglös

Það er alls ekki sama hvers kyns glös eru notuð við viskísmökkun. Sé meiningin að njóta viskís almennilega er best að nota glös sem eru feit neðantil og/eða í miðjunni en þrengjast eftir því sem ofar dregur. Sú lögun heldur allri lykt og bragði ofan í glasinu sem þýðir að maður getur endalaust lyktað af viskíinu og bragðað á því án þess allt saman gufi upp með hið sama. Þessi lögun verður þess valdandi að glasið heldur inni bragði og lykt og maður upplifir viskíið á réttan hátt. Viskí er sterkur og líflegur vökvi sem getur ekki beðið eftir að komast upp úr glasinu, þessi lögun heldur aftur af því!

Þetta á við allt sterkt áfengi, viskí, romm, koníak os.frv. Þó hefur skapast bjánaleg hefð fyrir því að drekka viskí úr kassalaga eða sívölum glösum glösum. Skoðum sögu þess ögn.

Þegar flestir heyra orðið “viskíglas” dettur þeim í hug stórt, botnþungt, kassalaga eða sívalt glas. Þau eru enn þann dag í dag markaðssett sem hin eiginlegu viskíglös. Þess háttar glös voru notuð á bannárunum í Bandaríkjunum, þegar innflutningur og framleiðsla áfengis var mestmegnis bönnuð, (Laphroaig var reyndar leyft, því engum Kana datt í hug að einhver myndi neyta slíks drykkar sjálfviljugur og var það flokkað sem meðal). Á þessum tíma grasseruðu alls kyns “verksmiðjur” hér og þar og allskonar sulli var smyglað til, og innan, Bandaríkjanna eins og gengur og gerist í slíku ástandi. Þar af leiðandi voru menn að drekka allskonar óþverra og þurftu ógrynnin öll af klökum til að deyfa óbragðið. Þaðan koma þessi glös, það þurfti að vera pláss til að, í fyrsta lagi að koma ísnum ofan í glasið (þess vegna voru þau svona galopin að ofan) og svo þurfti að vera pláss fyrir klakann ofan í glasinu.

Þarna spilar inn hinn almáttugi máttur Hollívúdd. Þessi glös rötuðu í kvikmyndirnar á þessum árum. Hömpfrí Bógart fékk sér viskí í svona risaglasi (tumbler) og þá hélt heimsbyggðin að þetta væri hið eina rétta viskíglas, sem það var kannski í U.S.A og hver vill ekki líkjast Hömpfrí Bógart? Evrópubúar vissu vissulega betur í þá daga, rétt eins og í dag. Í dag eru allsstaðar á markaði mun betri og vandaðri viskí sem er engin ástæða til að deyfa með klökum. Glencairn viskíglösin eru bestu glösin að mínu mati og flestra í bransanum.

Þessi glös er  hægt að nálgast á Íslandi á þessari fésbók

Published in: on 29/01/2011 at 22:24  Ummæli (9)  

Big Peat

Einmöltungar, eða “single malt” eru yfirleitt í hærri vegum hafðir hjá mér en blönduð viskí, eins og raunin er hjá flestum sem eru í þessum bransa. Einmöltungur þýðir einfaldlega að viskíið kemur frá einni ákveðinni verksmiðju og inniheldur eingöngu maltviskí, þ.e.a.s. gert úr möltuðu byggi. Frægustu tegundir einmöltunga eru til að mynda Glenfiddich, Laphroaig, Talisker, Glenlivet os.frv. og eru nefnd eftir viðkomandi verksmiðjum. Blönduð viskí eru viskí sem koma frá mörgum mismundandi verksmiðjum og innihalda einnig kornviskí, sem er ódýrara í framleiðslu. Því fara blönduð viskí oft neðar á verðlistanum en einmöltungar. Kornviskí eru oftast gerð úr hveiti eða maís. Fræg blandviskí eru t.d. Johnnie Walker (sá græni er reyndar blandað maltviskí), Chivas og Dimple. Vissulega eru til dýrar blöndur, eins og t.d. Johnnie Walker Blue, sem fer á um 161 pund í búllunni minni. Það er vegna þess að í JWB eru afar gömul viskí í bland við yngri. Sé aldur tekinn fram á flösku, þá þarf að taka fram yngsta dropann sem flaskan inniheldur. Samanstandi tiltekin viskíblanda af 99% 80 ára gömlu viskí, og 1% af fjögurra ára, þarf aldurstilgreiningin að segja 4 ára. Því eru blönduð viskí oft án aldurstilgreiningar. Til eru vissulega afar góðar viskíblöndur sem standa einmöltungum síst að baki enda er misjafn sauður í mörgu fé.

Auk blandaðas viskís, sem er á enskunni “blended Whisky” eru til blönduð maltviskí og eru þau í dag oftast nefnd “blended malt”, eða “pure malt”. Áður fyrr var þetta fyrirbæri nefnt “vatted malt”. Þetta þýðir að viskíið er blanda af maltviskíum frá nokkrum verksmiðjum og inniheldur ekkert kornviskí., eingöngu maltviskí. Mér áskotnaðist einmitt flaska af blönduðu maltviskíi um daginn og ætla ég að hripa niður smá fróðleik um þá bokku.

Skepnan heitir Big Peat.

Peat er mór, og nóg af honum finnst í jarðvegi Skotlands, aðallega á Islay (borið fram “Æla” eða “Ajla”) sem er við suð-vestur horn Skotlands. Þar eru, á tiltölulega litlu svæði, anski margar og margar þekktustu viskíverksmiðjur Skotlands. Þar ber hæst að nefna Laphroaig. Einnig eru þar Bowmore, Ardbeg, Caol Ila, Bunnahabhain, Bruichladdich, Lagavulin og Kilchoman sem er ný. Ein sú frægasta meðal lokaðra verksmiðja var þar einnig, Port Ellen sem nú er eingöngu byggmöltunarverksmiðja og sér flestum hinna fyrir byggi.
Í hinu langa og afar flókna ferli sem tilheyrir viskíframleiðslu, þá þarf á ákveðnum tímapunkti að þurrka byggið, sem fyrr í ferlinu var bleytt til að láta það spíra. Víðast hvar er það gert yfir kolaeldi, en á Islay er hefð fyrir því að nota mór sem eldsneyti. Það er þaðan sem þessi ákveðni reykjarkeimur kemur sem einkennir flest viskí frá eynni.

Big Peat er blanda af viskíum frá Bowmore, Ardbeg, Caol Ila og hinni sögufrægu Port Ellen, sem lokaði árið 1983 og inniheldur eingöngu maltviskí eins og áður hefur komið fram. Það angar af reyk, mór og mold og er einnig með mikinn saltkeim. Ég er með ungt, reykt Bunnahabhain hér til samanburðar, og Big Peat er ögn mildara, og leðurkenndara sem er einkenni sem eflaust á ættir að rekja til Bowmore. Port Ellen er verksmiðja sem erfitt er að finna viskí frá, enda hefur hún verið lokuð síðan 1983. Ég hef þó verið það heppinn að prófa nokkrar tegundir þaðan og er það eitthvað það besta sem ég hef tungu minni vafið. Afar margslungið og kemur það fram finnst mér , í Stóra Pésa. Langt og gott reykt eftirbragð, skilur mikið eftir sig. Ég er mikill aðdáandi reyktra Islay viskía, og þetta gersamlega steinliggur.

Stóri Pési er átappaður af Douglas Laing átöppunarverksmiðjunni og kostar 29.95 pund.

Published in: on 10/05/2010 at 18:02  Ummæli (3)  
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 34 other followers