Það fer óhemju í taugarnar á mér að það skuli ekki vera gerður greinarmunur á einmöltungum og blöndum á heimasíðu ÁTVR. Sýnir vel metnaðinn hjá þessu blessaða fyrirtæki. Hér ætla ég að flokka niður þau viskí sem eru í kjarnasölu hjá ÁTVR.
Hér eftir fara viskí frá öðrum löndum en Skotlandi og verður að segjast hér hér er ekki beint um grösugan garð að gresja!!!
Glen Breton, einmöltungur frá Kanada. Gaman að prófa en í guðanna bænum ekki spreða í heila flösku.
Jameson – klassískt, blandað viskí frá Írlandi. ágætt til síns brúks, klassíker í Irish Coffee.
Jack Daniel’s – klassískt Tennessee-viskí frá Bandaríkjunum. Hálfgerður ruddi og sumir fíla slíkt.
Jim Beam – SKAMMARLEGT að þetta sé eina búrbon-viskíið í ÁTVR og hananú! Miðlungs búrbon.
Tullamore Dew – írsk blanda sem afar lítið varið er í.
Þetta úrval er náttúrulega bara ekki neitt annað en hlægilegt.