Oft kemur til mín fólk og spyr hvernig sé best að byrja að drekka viskí? Hvernig sé best að “þjálfa” sig í viskídrykkju, hvar sé best að byrja o.s.frv. Við því er náttúrulega ekkert eitt svar, svörin eru sjálfsagt jafn mörg og mannskepnurnar sjálfar. Flestir sennilega byrja á einhverju léttu, jafnvel ódýrari blöndum og blanda út í gosdrykki. Ég byrjaði þannig, það komst ekkert að nema Jim Beam og kók hjá mér þegar ég var að byrja að fikta við þessa vitleysu. Ég hélt að Jim Beam og Jameson væru upphaf og endir alls viskís…þannig væri viskí bara, punktur og basta. Sú er aldeilis ekki raunin. Ég smakkaði 15 ára gamlan Bowmore-Mariner fyrir nokkrum árum síðan, 2004-2005 sennilega og man enn eftir unaðstilfinningunni sem fór um mig. Það varð ekki aftur snúið.
Leiðin sem ég fór inn í viskíheiminn er kannski ekki sú sem flestir fara því Bowmore er nett reykt viskí. Fyrir flesta er það svona full gróft til að byrja með. Margir byrja, eins og ég segi, á blönduðum viskíum og eiga það til að blanda þau í gosdrykki eða drekkja þeim í ísmolum. Gallinn er sá að margir fara ekkert lengra, staldra við þar og halda, eins og ég gerði, að svona séu viskíin bara. Hvet alla sem eru að prófa sig áfram í viskídrykkju að stíga skrefið aðeins lengra og prófa létta einmöltunga. Séu þeir of sterkir fyrst um sinn er akkúrat ekkert að því að skella smá vatni í glasið, það er engin skömm að þvi eins og svo margir halda. Mörg viskí verða m.a.s. enn betri við smá vatnsdropa, það verða efnabreytingar í viskíinu þegar vatni er bætt við og það gefur því nýja vídd, oftast verða þau betri en það fer allt eftir viskíinu sjálfu og vatnsmagninu. Það sem margir vita ekki er að þegar viskí er átappað á flöskur, þá er í flestum tilvikum, vatni bætt út í. Þegar viskí er segjum 40-45% prósent er nánast öruggt að vatni hefur verið bætt við til að milda það (þetta fer eftir aldri, skosk viskí tapa alkóhóli með aldrinum). Náttúrulegur styrkleiki skosks viskís er vanalega á bilinu 55-65 prósent, allt eftir aldri og tegund.
Fyrir þá sem vilja taka fyrstu skrefin inn í veröld einmöltunganna ætla ég að renna yfir úrvalið í Ríkinu blessaða.
-Bunnahabhain 12 ára er tilvalið byrjendaviskí. Létt, ávaxtakennt og ferskt.
http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.aspx/tabid-54?productID=18743
-Glenfiddich 12 ára er ágætt. Aðalástæðan fyrir að ég hendi því hér inn er að það er tiltölulega ódýrt, miðað við mörg önnur. Létt og ferskt, en frekar einfalt.
http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.aspx/tabid-54?productID=00755
-Highland Park 12 ára er nokkuð sterkt viskí, vottur af reyk, hunangskenndum sætleika. Ögn gróft fyrir suma kannski, en vel þess virði að prófa.
http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.aspx/tabid-54?productID=12104
-Old Pulteney 12 ára er fullkomið byrjendaviskí. Afar létt, ferskt, smá söltugt eftirbragð, yndislegt viskí á góðu verði. Finnst ansi “magnað” að ég hafði samband við birgjann á síðasta ári með innflutning á þessu viskíi í huga þar sem það fékkst ekki á Íslandi. Þeir sögðust engan áhuga hafa, en nú er það allt í einu komið á markað, frá sama birgja….hmmmmmm… hressandi….
-Strathisla 12 ára. Fínasta viskí,mikill ávöxtur, létt og auðdrukkið. Verðlagt allt, allt of hátt þó.
http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.aspx/tabid-54?productID=07097
-Glenlivet 12 ára. “ódýrt”, ágætisviskí, góð byrjun en ekkert of spennandi.
http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.aspx/tabid-54?productID=00744
Fyrir þá sem vilja demba sér út í, segi ekki djúpu laugina, heldur svona fyrir miðri laug eru hér nokkur ágæt:
-Bruichladdich Waves. Ungt, smá reykur og svolítið hvasst.
http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.aspx/tabid-54?productID=12515
-Ledaig 10 ára. Stórgott viskí, léttreykt, samt skemmtilega ferskt. Vanmetið.
-Talisker 10 ára. Eitt af mínum uppáhalds. Nettur reykur, kryddkeimur, pipar…meiriháttar viskí og hananú.
Og fyrir þá sem vilja demba sér í djúpu laugina, eru hér tvö stórgóð:
-Caol Ila 12 ára. Reykbomba, söltugt, mór…alveg magnað viskí. Caol Ila er ein af mínum uppáhads verksmiðjum.
-Laphroaig 10 ára. Þetta er alls ekki allra og mæli ekkert sérstaklega með að þetta sé reynt sem fyrsta viskí. Þó eru vissulega margir vitleysingar eins og ég sem falla kylliflatir fyrir þessu um leið. Þetta var annar einmöltungurinn sem ég smakkaði á eftir Bowmore-num á sínum tíma. Steinlá alveg.
Vonandi verður þetta einhverjum að liði.