ÁTVR – blönduð viskí

Það fer óhemju í taugarnar á mér að það skuli ekki vera gerður greinarmunur á einmöltungum og blöndum á heimasíðu ÁTVR. Sýnir vel metnaðinn hjá þessu blessaða fyrirtæki. Hér ætla ég að flokka niður þau viskí sem eru í kjarnasölu hjá ÁTVR.

Hér eftir fer listi yfir þau viskí sem er í kjarnasölu ÁTVR og tilheyra blönduðum viskíum, þ.e.a.s. viskí sem gerð eru úr möltuðu byggi sem og annars konar korni. Flest ber þau að varast sé ætlunin að fá sér eðalviskí.

Skoskar blöndur:

Ballantine´s -  . Mér finnst það hálfsjokkerandi hversu mikið úrvalið er af Ballantines’s í ÁTVR.

Black Bottle 10 ára. Ágætis blanda alveg hreint, samanstendur af einmöltungum frá Islay ásamt öðrum kornviskíum annarstaðar að, og er því frekar reykt og fínt.

Castle Rock –  Þetta viskí er náttúrulega bara djók.

Chivas regal – Það er nú meira sem er alltaf snobbað fyrir þessu viskíi. Ágætt til síns brúks, skárra en flestar blöndur.

Glen Ellis

Grant’s - Eitt orð: skítaviskí

Haig’s Dimple – Með skárri blöndum

Highland Gold - Þetta er nú bara fyndið

Johnnie Walker – ágætis blöndur, sú svarta (12 ára) töluvert bragðbetri en sú rauða. Hinar útgáfurnar (grænn, gylltur og blár) eru víst ekki til í ÁTVR.

Long John – Enn eitt grínið.

Scottish Leader – Eitt þeirra viskía sem kemur illu orði á viskí.

The Black Grouse – Reykt útgáfa af The Famous Grouse. Alls ekki svo slæmt, oft ódýrt og því fæst ágætt fyrir peninginn.

The Famous Grouse – Skítsæmileg blanda.

The Snow Grouse

The Talisman – Ekkert svo slæmt, mjög gott verð!

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 34 other followers