Nú ræður vetur konungur ríkjum á Íslandi og hvað er betra eftir að hafa bisað við að moka húsið upp, en að koma inn í hlýjuna, rífa sig úr kuldagallanum og föðurlandinu, hlamma sér í sófann og súpa á lífsins vatni, svona rétt til að fá yl í kroppinn?
Minn fyrsti kostur (tekið mið af úrvali í ÁTVR) væri Ardbeg, sem fæst reyndar bara í fríhöfninni, eða Caol Ila, sem ætti að fást a.m.k. í Kringlunni og/eða Heiðrúnu.
Hvort tveggja afara reykt, Ardbeg sínu meir. Fullkomin til að ylja sér við á köldum kvöldum.
Önnur mætti nefna
Highland Park örlar á þurrum reyk, sætt.
Laphroaig - klassíker. Reykur, mór, salt, tjara
Talisker - léttreykt, krydd, pipar, salt
Svo er hérna eitt sem er afar skemmtilegt. Port Charlotte an turas mor, sem er framleitt í Bruichladdich verksmiðjunni. Ef hin sem ég taldi upp eru of kunnugleg, en ykkur langar í reykbombu…tékkið þá á þessu!
Fullkomin vetrarviskí öllsömul
Ég var einmitt að opna of prufa “Port Charlotte Turas an mor” flöskuna mína í fyrradag. Frábært viskí!!! Er orðin mjög spenntur að prufa nýa 10 ára frá Bruichladdich.
Nya 10 ara utgafan er virkilega god. Their segja ad hun se oreykt, en thad er samt oggu poggu reykur og mor i henni. Ekki mikid, meiri avoxtur, malt…
Sælir,
Átt þú nokkuð svar við því útaf hverju framleiðslu á 16 ára Highland Park var hætt, og þá einnig útaf hverju, sé það þó helst á flugvöllum, að þá eru tegundirnar með ártali á frekar en árafjölda. Þá langar mig einnig til að forvitnast um skoðun þína á þessum nýju viskíum frá þem, t.d. Thor, Drakkar og Leif Eiríksson ?
16 ára útgáfunni var slúttað um mitt ár 2010 ef ég man rétt og er nokkur sjónarsviptir af henni. Hún var þó eingöngu ætluð fyrir sölu í fríhöfnum. Á þessum tíma ákváðu einhverjir gúrúar innan vébanda Hávalla að þar eftir yrðu fríhafnaviskíin þeirra að mestu árgangsviskí. Ástæðurnar þar að baki þekki ég ekki, eflaust einhver háskólamenntuð markaðsfræði sem liggur þar að baki.
Víkingaviskí þeirra Hávallabræðra þekki ég ekki nógu vel. Hef ekki verið svo heppinn að smakka þau. Eflaust eru þau afar góð en grunar að maður sé að borga ansi mikið fyrir pakkningarnar