Bjorbok.net

Rakst rett i thessu a ansi fint bjorblogg

 

Published in: on 31/01/2012 at 12:49  Rita ummæli  

Vetrarviskí

Nú ræður vetur konungur ríkjum á Íslandi og hvað er betra eftir að hafa bisað við að moka húsið upp, en að koma inn í hlýjuna, rífa sig úr kuldagallanum og  föðurlandinu, hlamma sér í sófann og súpa á lífsins vatni, svona rétt til að fá yl í kroppinn?

Minn fyrsti kostur (tekið mið af úrvali í ÁTVR) væri Ardbeg, sem fæst reyndar bara í fríhöfninni, eða Caol Ila, sem ætti að fást a.m.k. í Kringlunni og/eða Heiðrúnu.

Hvort tveggja afara reykt, Ardbeg sínu meir. Fullkomin til að ylja sér við á köldum kvöldum.

Önnur mætti nefna

Highland Park   örlar á þurrum reyk, sætt.

Laphroaig - klassíker. Reykur, mór, salt, tjara

Talisker - léttreykt, krydd, pipar, salt

Svo er hérna eitt sem er afar skemmtilegt. Port Charlotte an turas mor, sem er framleitt í Bruichladdich verksmiðjunni. Ef hin sem ég taldi upp eru of kunnugleg, en ykkur langar í reykbombu…tékkið þá á þessu!

Port Charlotte, Turas an mor

Fullkomin vetrarviskí öllsömul

Published in: on 26/01/2012 at 22:05  Ummæli (4)  

Finlaggan

Smakkaði viskí í dag sem ég hef aldrei áður smakkað. Gripurinn er frá Finlaggan átöppunarfyrirtækinu og er einmöltungur frá Islay. Málið með Finlaggan er að þeir sem átappa skepnunni láta ekki í ljós hvaðan kvikindið kemur, frá hvaða verksmiðju. Eina sem er tekið fram er að það er frá einni ákveðinni verksmiðju á eyjunni Islay. Það er víst algert hernaðarleyndarmál hvaða verksmiðja það er sem leggur til viskíið í þessa tilteknu flösku. Margir halda að þetta sé ungt Lagavulin. Gæti vel verið en ég er þó ekki alveg sannfærður. Lagavulin er ekki stór verksmiðja en eftirspurnin er gríðarleg eftir viskíinu þeirra og ég verð að leyfa mér að efast um að þeir séu að selja eitthvað til átöppunarfyrirtækja. Þó minnir þetta vissulega á Lagavulin en ég hallast þó frekar að því að þetta sé Caol Ila. Það hefur sætuna og léttleikann sem einkennir Caol Ila. Þetta er ungt, mjög ungt. Aldrei yfir 10 ára. Eflaust á aldrinum 6-9. Það fyrsta sem slær mann er reykurinn, það er ekkert mikið meira að gerast til að byrja með…en svo þegar maður er farinn að sjá til handa eftir að hafa barist fram úr reykjarmekkinum, þá spretta fram þessi Caol Ila sætindi sem maður kannast við. Frekar vel þroskað eftir aldri, það hefur þennan ferska, sterka ávaxtakeim sem oft einkennir ung viskí en það er þarna líka töluverður þroski, keimur af rúsínum, smá lakkrís, pipar, en fyrst og fremst, reykur. Skemmtileg viskí, virkilega líflegt.

http://www.royalmilewhiskies.com/product.asp?pf_id=0010000005165

Published in: on 26/01/2012 at 21:46  Rita ummæli  

Gleðilegt ár!

Hvernig væri nú að henda inn eins og einni örfærslu ha…

Búið að vera brjálað að gera í búllunni yfir jól og áramót, svo mikið að ég forðaði mér bara til Frakklands yfir áramótin og eyddi þeim þar. Það var nú ekkert svo slæmt!

Á jóladag opnaði ég Clynelish flöskuna sem ég nefndi hér í annarri færslu. Sú var eintunnungur, 15 ára sérrítunna. Ég er mjög hrifinn af Clynelish verksmiðjunni og vonaðist því eftir einhverri svaka bombu. Reyndar var þetta svolítil áhætta hjá mér, þar sem mér líkar alls ekki öll sérrítunniviskí. Mörg eru ofsalega góð, en það getur auðveldlega brugðið til beggja vona. Þetta voru, því miður, ákveðin vonbrigði. Of mikil sérríáhrif, léleg tunna greinilega og eins og stundum vill verða með viskí úr sérrítunnum, þá var þarna ákveðinn súlfúr/brennisteinskeimur. Nett vonbrigði, en hvað um það…fínasta viskí.

Í gær var minn fyrsti dagur sem aðstoðarverslunarstjóri hjá Royal Mile Whiskies. Hann gekk bara ansi vel og er ég djöfull spenntur fyrir framhaldinu. Þann daginn slysaðist meira að segja inn fyrsta pöntunin frá Íslandi síðan ég byrjaði að vinna hjá fyrirtækinu fyrir þremur og hálfu ári síðan tæplega. Skemmtileg tilviljun það.

Óska ykkur öllum gleðilegs árs og þakka innlitið hér á bloggið mitt á liðnu ári.

Published in: on 04/01/2012 at 17:06  Ummæli (5)  

Hvernig væri nú að henda inn eins og einnu örfærslu ha…

Búið að vera brjálað að gera í búllunni yfir jól og áramót, svo mikið að ég forðaði mér bara til Frakklands yfir áramótin og eyddi þeim þar. Það var nú ekkert svo slæmt!

Á jóladag opnaði ég Clynelish flöskuna sem ég nefndi hér í annarri færslu. Sú var eintunnungur, 15 ára sérrítunna. Ég er mjög hrifinn af Clynelish verksmiðjunni og vonaðist því eftir einhverri svaka bombu. Reyndar var þetta svolítil áhætta hjá mér, þar sem mér líkar alls ekki öll sérrítunniviskí. Mörg eru ofsalega góð, en það getur auðveldlega brugðið til beggja vona. Þetta voru, því miður, ákveðin vonbrigði. Of mikil sérríáhrif, léleg tunna greinilega og eins og stundum vill verða með viskí úr sérrítunnum, þá var þarna ákveðinn súlfúr/brennisteinskeimur. Nett vonbrigði, en hvað um það…fínasta viskí.

Í gær var minn fyrsti dagur sem aðstoðarverslunarstjóri hjá Royal Mile Whiskies. Hann gekk bara ansi vel og er ég djöfull spenntur fyrir framhaldinu. Þann daginn slysaðist meira að segja inn fyrsta pöntunin frá Íslandi síðan ég byrjaði að vinna hjá fyrirtækinu fyrir þremur og hálfu ári síðan tæplega. Skemmtileg tilviljun það.

Published in: on 04/01/2012 at 17:05  Rita ummæli  
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 34 other followers